ÞRETTÁNDI VERZLINGUR VIKUNNAR

Wazzup kæru lesendur? Ööö þakið! Útaf þið vitið þakið er uppi og það haha úff. Allavega... TÍVÍ vika í vikunni og allir hressir fyrir utan kannski á mánudaginn enda fólk almennt ashkoti myglað eftir Vælið. Það var á þriðjudagin sem það fór að koma smá litur í fólk þegar Kaiserinn hélt uppistand á Marmz. Umræðuefnið var aðalega gredda og dead grannys en jújú Verzlingar höfðu gaman af þessu. Það var nú samt fimmtudagurinn sem allir biðu eftir því þá steig hinn stóri, hinn mikli og sá nikotínpúðalausi JOJO PAC á svið! Jojo sjálfur var að skítast úr stressingi baksviðs enda gig lífs hans framundan en... svo bara mætti hann. Shit, lýðurinn trylltist! Enda ekki á hverjum degi sem maður fær að sjá aðra eins hæfni og list. Á fösh var hent í flöskuborð á marmaranum og 1v1 hoops og síðan var sjálfur TÍVÍ þátturinn sýndur í Kringlubíói. Mjöööög fokking gott shit hahaha en ef þið misstuð af honum kemur hann á ÞúTúb fljótlega. Síðan var flippsýning Listóleikritsins um kvöldið and holy hell more on that now:
Ég hélt ég væri búinn að gefa listó hópnum öll blóm sem hægt væri að fá en nei, það er allavega eitt blóm eftir og það fékkst á flippsýningunni í gær. Fukk me all the way to tears hvað þetta var fyndið. Ég er bara pínu fúll yfir því að vera nú þegar búinn að gera Listóhópinn í heild sinni VV og þurfa að velja einhvern einn. En, að því sögðu, tilkynni ég 13 Verzling Vikunnar, það er Kári Hlíðberg! Vá vá vá aldrei hef ég séð þessa útgáfu af því að vera boshman og það er erfitt að lýsa henni en þessi útgáfa snýst um að sprengja freyðivín og reykja sígó á miðju leikriti í bláa sal. (Hæ Gunninga! Takk fyrir að lesa og þetta var 0% og fake sígó.) Síðan má ekki gleymast að menn voru að halda Vælið bara fyrir korteri. Shout á Halldór hann er í svipuðu shitti og var geggjaður á flippsýningunni líka! Gaur fokk það voru allir geggjaðir ég er með smá samviskubit. En allt í allt frábært dæmi, frábær vika og til hamingju Kári, you are VV (again)!
And cut!
Óli, ritstjóri Verzlings Vikunnar











